
Hver kannast ekki við veiðiferðir þar sem þriðju hendina vantar? Bakpokinn á sínum stað, báðar hendur fullar og axlaóla dótið (byssa,sjónauki,myndavél) rennandi til og frá í hverju skrefi.
Ólíkt okkur sem höfum staðið í þessu brasi veiðiferð eftir veiðiferð þá ákvað vinkona okkar hún María sem býr norður í Lapplandi að gera eitthvað í málinu.
Útkoman er Axel! Einfaldur krókur sem rennt er upp á axlarólina á bakpokanum og heldur öllum búnaði á sínum stað :)